Íslensku málhljóðin í brennidepli. Bókin um Lubba er hugsuð til málörvunar og hljóðanáms fyrir börn á aldrinum tveggja til sjö ára. Höfundar bókarinnar, Þóra Másdóttir og Eyrún Ísfold Gísladóttir, eru talmeinafræðingar og hafa áralanga reynslu af talþjálfun barna. Í bókinni nýtist sérfræðiþekking þeirra bæði börnum sem glíma við erfiðleika í máltöku og hinum sem læra málið án vandkvæða. Efnið stuðlar einnig að auðugri orðaforða og ýtir undir skýrari framburð.
Í bókinni er sérhvert málhljóð kynnt með stuttri sögu, skemmtilegri vísu eftir Þórarin Eldjárn og glæsilegum myndum eftir Freydísi Kristjánsdóttur.
Á diski sem fylgir prentuðu bókinni syngja börn úr Skólakór Kársness allar vísurnar við alþekkt lög. Í hljóðbókinni fyrir appið sem er til sölu hér á vefnum er texti bókarinnar lesin og lögin af disknum spiluð með.
LUBBI FINNUR MÁLBEIN. ÍSLENSKU MÁLHLJÓÐI N SÝND OG
3.995 kr.
Ekki til á lager
- Höfundur: EYRÚN ÍSFOLD GÍSLADÓTTIR & ÞÓR
- Útgáfa: 1
- Útgáfuár: 2009
- Útgefandi: MALOGME1
- ISBN: 9789979330806