Ungur maður lætur lífið í dularfullum eldsvoða á Akranesi og skilur eftir sig samfélag í sárum. Athafnamenn á Skaganum villast af þröngum vegi dyggðanna í einkalífi og starfi. Og um nætur bregður fyrir ókennilegum skuggum í þessu friðsæla bæjarfélagi.
Lögreglukonan Elma þarf að kljást við flókið og erfitt mál samhliða því sem atburðir eiga sér stað í einkalífi hennar sem gera það að verkum að líf hennar mun aldrei verða sem fyrr.
Eva Björg Ægisdóttir sló efirminnilega í gegn með fyrstu bók sinni Marrið í stiganum en fyrir hana hlaut hún glæpasagnaverðlaunin Svartfuglinn árið 2018. Útgáfurétturinn á bókinni hefur verið seldur víða um heim. Hún hefur nú þegar komið út í Bretlandi og hlotið frábæra dóma.
Næturskuggar er sérlega grípandi og spennuþrungin saga – og endalokin koma verulega á óvart.