Íslendingar hafa löngum verið áhugasamir um sögu þjóðarinnar, atburði, mannfólk og lífið í landinu frá landnámi til okkar daga.
Hér birtist heildstætt og handhægt yfirlit Íslandssögunnar í hnotskurn í ljósum og hnitmiðuðum texta og fjölda mynda, kjörið til glöggvunar og upprifjunar.
Höfundur bókarinnar, Gunnar Karlsson, var lengi prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands og skrifaði fjölda kennslubóka og fræðirita.