Birta býr í óvistlegri kjallaraholu með ókunnugu, fullorðnu fólki. Það kýs hún þó miklu heldur en heimabæinn sem hún flúði eftir að hafa komið út sem trans við lítinn fögnuð fjölskyldu og vina. En svo hverfur konan í næsta herbergi sporlaust, og síðan önnur. Hvaða konur eru þetta og hvað verður um þær? Og hvað er Jóhanna, skólasystir hennar, að spá? Getur verið að hún sé skotin í Birtu? En veit hún þá hver Birta er?
STERK er hröð og spennandi saga sem varð hlutskörpust í sam[1]keppninni um Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur 2021.
„Af einlægni og með virðingu fyrir viðfangsefninu hefur Margréti tekist að setja fram sögu sem fjallar um vegferð trans stúlku og þörf hennar fyrir viðurkenningu fjölskyldu og vina; að vera metin á eigin forsendum. Á meðan hún er að fóta sig í nýjum veruleika flækist hún inn í dularfullt mál innflytjenda sem hún er knúin til að leysa.
“ ÚR UMSÖGN DÓMNEFNDAR BARNABÓKAVERÐLAUNA GUÐRÚNAR HELGADÓTTUR
Margrét Tryggvadóttir hefur sent frá sér bækur af ýmsu tagi, síðast Kjarval – Málarinn sem fór sínar eigin leiðir sem hlaut Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar. Bækur hennar Íslandsbók barnanna og Skoðum myndlist hlutu Fjöruverð¬¬[1]launin – bókmenntaverðlaun kvenna og Sagan af undurfögru prinsessunni og hugrakka prins[1]inum hennar hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin. Margrét er fædd í Reykjavík árið 1972. Hún er bókmenntafræðingur, með meistarapróf í menn [1]ingarstjórnun og fyrrverandi alþingismaður, en finnst skemmtilegast að skrifa fyrir ungt fólk.