Komdu með Stjörnu-Sævari í ferðalag um sólkerfið okkar. Sumir áfangastaðir eru framandi – aðrir kunnuglegir. Það eina sem þú þarft að hafa með þér er ímyndunarafl og fróðleiksfýsn.
Sólkerfið er skemmtileg léttlestrarbók eftir Sævar Helga Bragason sem vökvar, örvar og eflir vísindalæsi krakka frá sex ára aldri. Bókin er prýdd fjölmörgum litmyndum af furðum og töfrum himingeimsins eftir Elísabetu Rún.
Elísabet Rún myndlýsti