Vinkonurnar Vigdís Fríða, Geirlaug og Rebekka eru með ýmislegt á prjónunum en öll áform þarf að endurskoða þegar Covid-19 gengur yfir heimsbyggðina með tilheyrandi veikindum, einangrun og sóttkví. Þessi nýi raunveruleiki er sannarlega ekki á óskalista framkvæmdaglaðra krakka! Þó má alltaf finna sér óvænt verkefni, eins og að reka sjoppu eða fylgjast grannt með dularfullum nágrönnum. Og stundum þurfa stelpur einfaldlega sjálfar að ganga í málin.
NÚ ER NÓG KOMIÐ! eftir Hildi Knútsdóttur og Þórdísi Gísladóttur er spennandi og sprenghlægilegt sjálfstætt framhald af HINGAÐ OG EKKI LENGRA! sem var tekið fagnandi, bæði af ungum lesendum og gömlum gagnrýnendum.
Helga Valdís Árnadóttir myndlýsti.