Hin lífsglaða Lára hefur sérstaklega gaman af að læra eitthvað nýtt. Bangsinn Ljónsi fylgir henni hvert fótmál og saman spreyta þau sig á ýmsum verkefnum.
Lára vaknar eldsnemma og ætlar að koma pabba og mömmu á óvart. Hún læðist inn í eldhús með Ljónsa sinn – þau ætla nefnilega að búa til sparimorgunmat fyrir alla fjölskylduna. Skemmtilegast væri að bjóða upp á eitthvað nýbakað en Lára veit að hún má ekki kveikja á ofninum þegar hún er ein. En þá fær hún góða hugmynd …