Í ritinu er fjallað um þjóðerni félaga og þýðingu þess fyrir
það efni sem hér er til meðferðar. Í því sambandi er vikið
sérstaklega að evrópskum reglum um þjóðerni. Enn fremur
er þar fjallað um samræmingu laga á sviði félagaréttar á
vegum Evrópusambandsins. Hún fer fram með svonefndri
afleiddri löggjöf og öðrum gerðum sambandsins, einkum
reglugerðum og tilskipunum. Þessi viðleitni til samræmingar
á sviði félagaréttar hefur þegar skilað miklum árangri innan
sambandsins. Er gerð grein fyrir þessu í ritinu. Að lokum
er fjallað um reglur fjórfrelsisins um stofnsetningarrétt,
þjónusturétt og frjálsa fjármagnsflutninga. Þær reglur eru
mikilvægar í þessu samhengi því þær skapa þann lagalega
grundvöll sem evrópsk félög hafa til að færa út kvíarnar og
víkka út starfsemi sína með margvíslegu móti yfir landamæri.
Evrópskur félagaréttur
5.895 kr.
Á lager