Öll gerum við mistök. Klúðrum einhverju hressilega, rennum á rassinn þegar síst skyldi og gerum ægileg glappaskot. En í stað þess að svekkja okkur á því ættum við frekar að opna þessa bók og lesa okkur til um alls konar fólk sem gerði mistök sem leiddu til stórkostlegra hluta. Björguðu jafnvel mannslífum. Eða færðu okkur popp.
ÚPS! Mistök sem breyttu heiminum er þriðja léttlestrarbókin í hinum geysivinsæla Vísindalæsisflokki Sævars Helga Bragasonar. Skemmtilegur fróðleikur og fjörugar staðreyndir úr heimi vísindanna.
Bókin er prýdd fjölmörgum litmyndum eftir Elías Rúna.