Maðurinn frá São Paulo er spennusaga um launmorð, njósnir og nasista á flótta.
Þýskur hermaður særist í orrustunni um Rostov í Úkraínu árið 1942. Honum er bjargað við illan leik.
Josef Mengele, dauðaengillinn í Auschwitz, flýr Evrópu fjórum árum eftir stríðslok.
Árið 1960 rænir ísraelska leyniþjónustan Adolf Eichmann í Buenos Aires. Réttað er yfir honum og hann hengdur í Tel Aviv.
Í Reykjavík er leigubílstjóri skotinn í hnakkann árið 1977. Héðinn Vernharðsson rannsakar málið.
Í þessari annarri bók sinni fléttar Skúli Sigurðsson skáldskap saman við sögulega atburði og raunverulegar persónur svo úr verður magnaður hildarleikur – sem heldur lesendum í heljargreipum til síðustu síðu.
Fyrsta bók Skúla, Stóri bróðir, hlaut Blóðdropann 2023, íslensku glæpasagnaverðlaunin.