Undirritaðri er það sönn ánægja að tilkynna að bókaútgáfan hefur gefið
út 2. útgáfu af ritinu Endurheimt verðmæta við gjaldþrot – skýringar við
reglur XX. kafla laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. eftir Viðar Má
Matthíasson, rannsóknarprófessor við lagadeild Háskóla Íslands og fyrrverandi
hæstaréttardómara. Um er að ræða nýja og endurskrifaða útgáfu
af bók með sama heiti sem út kom á árinu 2000 og er fyrir löngu uppseld.
Riftunarreglur fengu í aðalatriðum núverandi skipan með lögum nr.
21/1991. Frá gildistöku þeirra hafa gengið nokkur hundruð dómar um
efni þeirra ekki sízt eftir að mælt var fyrir um að reglurnar skyldu gilda
við slit fjármálafyrirtækja, sbr. 4. mgr. 103. gr. laga nr. 161/2002 um
fjármálafyrirtæki. Við ritun 1. útgáfu bókarinnar frá 1998 til 2000 höfðu
gengið rúmlega 100 dómar um efnið, en við slit þeirra fjármálafyrirtækja
sem leiddi af hinni alþjóðlegu efnahagskreppu sem skall á haustið
2008 og lagðist með fullum þunga á íslenzkt efnahagslíf fjölgaði dómum
um riftun ráðstafana samkvæmt XX. kafla gþl. verulega. Auk dóma
tengdum efnahagskreppunni hafa gengið fjölmargir aðrir dómar um
riftun ráðstafana þrotamanns, sem um er fjallað í ritinu.
Með þeim mikla fjölda dóma sem gengið hefur frá fyrri útgáfu hafa ákvæði riftunarreglna XX. kafla um gjaldþrotaskipti
o.fl. þannig skýrzt mjög og liggja ýmis mikilvæg hugtök nú ljósar fyrir en áður, t.d. hvernig hugtökin greiðsla
og skuld eru notuð í 134. gr. laganna. Enn frekar hafa dómaframkvæmd og síðari norræn fræðiskrif skýrt auðgunarhugtak
142. gr. gþl., einkum að því leyti sem það skilur sig frá skaðabótaábyrgð og ákvörðun á fjárhæð skaðabóta.
Endurheimt verðmæta við gjaldþrot
15.995 kr.
Á lager
- Höfundur: Viðar Már Matthíasson
- Útgáfa: 2
- Útgáfuár: 2024
- Útgefandi: BOKAUTGAFANC
- ISBN: 9789935508218