Miðbæjarrottan: borgarsaga Rannveig er lattelepjandi miðbæjarrotta sem elskar fátt meira en borgarlífið. Þegar Karlotta frænka hennar týnist í Reykjavík, læðist að henni efi um að borgin sé góður staður fyrir rottur. Rannveig leitar aðstoðar hjá styttum bæjarins, sem margar muna tímana tvenna.
Auður Þórhallsdóttir er höfundur bæði texta og mynda.
40 bls.
Um höfund:
Auður Þórhallsdóttir er fædd árið 1974. Hún hefur áður gefið út barnabækurnar Sumar með Salla og Tönnin hans Luca/El diente de Luca í samstarfi við Pilar Concheiro.