Amerigo er sjö ára og býr í sárri fátækt með móður sinni í Napólí. Heimsstyrjöldinni er nýlokið og innviðir landsins eru í rúst. Kommúnistar vilja bjarga börnum borgarinnar frá verstu hörmungunum og koma þeim til vetrardvalar norður í landi, þar sem ástandið er skárra. Örsnauðir foreldrarnir eygja þar lífsvon fyrir börn sín.
Þúsundum saman eru börn úr suðrinu send með lest eftir Ítalíu endilangri og veröldin sem mætir þeim í norðri er framandi. Nægur matur, hlý föt, öryggi – og ný fjölskylda, nýir siðir og ný tækifæri. Sum snúa aldrei aftur til fyrra lífs.
Barnalestin er ljúfsár og einkar heillandi skáldsaga, byggð á sönnum atburðum; saga um harða lífsbaráttu, fjölskyldubönd og neyðina sem markar fólki bás og örlög. Sögumaðurinn ungi horfir barnslegum augum á heiminn en öðlast smám saman dýrkeyptan skilning á hlutskipti sínu. Hann velur sér framtíð, en fortíðin fylgir honum.
Höfundurinn, Viola Ardone, er sjálf frá Napólí. Barnalestin er þriðja bók hennar en sú fyrsta sem vekur verulega athygli utan heimalandsins.
Halla Kjartansdóttir þýddi
Barnalestin
3.595 kr.
Out of stock
- Author: Ardone, Viola
- Edition: 1
- Publishing year: 2021
- Publisher: MALOGME1
- ISBN: 9789979343516