Þegar Alfa Ndiaye treystir sér ekki til að veita æskuvini sínum Mademba Diop náðarhöggið þar sem hann liggur illa særður milli skotgrafa í fyrri heimsstyrjöldinni brestur eitthvað innra með honum og hefndarþorsti heltekur hann. Í fyrstu dást félagarnir að hugrekki Alfa en þegar voðaverkunum linnir ekki hættir þeim að lítast á blikuna.
Fransk-senegalski rithöfundurinn David Diop varpar ljósi á fáránleika skotgrafahernaðarins sem einkenndi fyrri heimsstyrjöldina, þar sem um tvö hundruð þúsund fótgönguliðar frá Vestur-Afríku létu lífið fyrir Frakkland. Afrísku hermennirnir gengu undir nafninu Chocolats vegna húðlitarins og var ætlað að verkja skelfingu hjá óvininum sem mannætur og villimenn vopnaðir sveðjum.