Kæri lesandi
Hver hafði trúað því að mótor-kross væri svarið við öllum okkar vandamálum?! Hvort sem það er RUGLIÐ í Þór, HRIKALEG vandræði Bellu gellu eða að pabbi GETI EKKI HÆTT að flytja ástarljóð um naki .. hérna hér, líkama mömmu?? Það lagast allt þegar man er komið í gallann, með hjálminn og gleraugun og gefur allt í botn. Og hver átti hugmyndina að þessu mótor-kross-ÆÐI? Ég! Stella Erlings … já, eða sko … Siggi … og Bella … Ómægod .. þið lesið þetta bara sjálf!
xxx Stella
Gunnar Helgason þarf vart að kynna fyrir íslenskum börnum, lesendum, öfum og ömmum. Bækurnar hans um Stellu og skrautlega fjölskyldu hennar eru í uppáhaldi hjá þeim öllum, auk þess sem þær eru margverðlaunaðar og stjörnum hlaðnar af hátíðlegum gagnrýnendum. Eftir ófáar ábendingar krakka um allt land um hvaða persóna ætti að vera í fókus í sjöundu bókinni er nú loksins komið að Bellu gellu krossara.