Paradísarmissir er stórbrotið söguljóð um syndafallið eftir Englendinginn John Milton (1608-1674). Verkið kom fyrst út árið 1667 og lítillega endurskoðað 1674, þá í tólf hlutum og er það sú útgáfa sem liggur til grundvallar hér.
Kvæðið er gríðarlega efnismikið, íslenska þýðingin yfir þréttán þúsund ljóðlínur auk efnislúsinga i lausu máli í upphafi hvers hluta. Frásögnin spannar i raun alla sögu heimsins samkvæmt trúarskilningi kristninnar, allt fré sköpun til dómsdags, en kjarninn er syndafallið og klækjabrögð Satans þegar hann freistar Adams og Evu i aldingarðinum Eden.
Auk þeirra eru Guð almattugur og Guðssonurinn i aðalhlutverkum, sem og erkienglarnir, en smærri persónur eru ófáar og barátta góðs og ills hatrömm og hörð.
Paradísarmissir hefur haldið nafni Miltons lofti sem eins af höfuðskáldum enskra bókmennta. Jón Erlendsson hefur nú þýtt þetta stórvirki á þjált og skiljanlegt mál af aðdáunarverðri eljusemi og list, ásamt því að skrifa skýringar, en dr. Ástraður Eysteinsson skrifar inngang um verkið og sögu þess. Útgáfan er prýdd fjölda mynda eftir Gustave Dore.