Í Skólapeysum eru tólf prjónauppskriftir að heilum peysum fyrir sex til fjórtán ára börn. Bókin er því kærkomin viðbót við flóru íslenskra prjónabóka enda vantar oft uppskriftir fyrir þennan aldurshóp.
Úrvalið er fjölbreytt; fljótlegar einlitar peysur, peysur með útprjóni og peysur með klassískum munsturbekkjum sem eiga örugglega eftir að hlýja mörgum börnum.
Skólapeysur er fjórða bókin eftir Prjónafjelagið sem hefur áður sent frá sér vinsælu bækurnar Heimferðarsett, Leikskólaföt og Leikskólaföt 2.