Í einræðisríki Pinochets í Chile kemur órólegur karlmaður inn á ritstjórnarskrifstofu dagblaðs á vegum stjórnarandstæðinga í landinu. Hann er öryggissveitarmaður. Ég vil segja frá því sem ég hef gert, segir hann, og blaðakonan kveikir á upptökutæki til að hlýða á vitnisburð sem opnar dyr inn í áður óþekkta vídd.
Nona Fernández (f. 1971) virkjar ímyndunaraflið til að komast staði sem hvorki finnast í minningum né skjölum. Hún tvinnar saman eigin reynslu og sögur mannsins sem pyntaði og útkoman er áhrifamikil og grípandi. Ein besta bók sem skrifuð hefur verið um þetta hræðilega tímabil í sögu Chile.