Augu Rigels er áhrifamikil saga um sterka og óvenjulega konu, framhald bókanna Hin ósýnilegu og Hvítt haf sem hafa fangað hug lesenda um víða veröld.
Það er sumar á Barrey, dúnninn er kominn í hús og eggin í tunnur, lífið er aftur fallið í fastar skorður eftir stríðið – eða hvað? Ingrid á einhverju ólokið og hún leggur af stað í langferð með tíu mánaða dóttur sína til að leita að föður hennar, Rússanum Alexander, sem ætlaði að flýja yfir fjöllin til Svíþjóðar um hávetur. Hún rekur slóð hans en hefur stöðugt á tilfinningunni að hún fái ekki að heyra allan sannleikann og að stríðinu sé ef til vill ekki endanlega lokið.
Fyrir Hin ósýnilegu hlaut Roy Jacobsen tilnefningu til hinna virtu Man Booker-bókmenntaverðlauna, fyrstur norskra rithöfunda. Hann hefur jafnframt verið tilnefndur til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í tvígang.