Bakað meira er sjálfstætt framhald bókarinnar BAKAÐ með Elenoru Rós.
Eldmóður Elenoru og ást hennar á bakstri skín áfram í gegn í þessari fallegu bók sem er bjartari, öflugri og persónulegri en sú fyrri. Hér deilir Elenóra sínum dýrmætustu uppskriftum úr æsku sem hingað til hafa aðeins leynst í uppskriftabókum fjölskyldunnar – útataðar í slettum!
Í bókinni má finna fjöldan allan af auðveldum, bragðgóðum og fallegum uppskriftum – bæði klassískum og nútímalegum sem allir geta gert.