Þú getur gert byltingarkenndar breytingar á andlegri og líkamlegri heilsu með því að jafna blóðsykurinn. Og það er auðveldara en þú heldur.
Glúkósi, þessi pínulitla sameind sem berst inn í blóðrásina með kolvetnum og sætindum, hefur gríðarleg áhrif á heilsu okkar. Flest höfum við allt of mikinn glúkósa í blóðinu – án þess að hafa hugmynd um það.
Afleiðingarnar geta verið síþreyta, skapsveiflur, ófrjósemi, hormónaójafnvægi, ofþyngd, bólur, hrukkur … og með tímanum getur of mikill glúkósi haft áhrif á þróun sjúkdóma á borð við sykursýki 2, fjölblöðrueggjastokkaheilkenni, krabbamein, Alzheimer og hjartasjúkdóma.
Í þessari áhugaverðu og aðgengilegu bók, sem byggist á nýjustu rannsóknum, gefur Jessie Inchauspé tíu hollráð sem hjálpa þér að jafna blóðsykurinn – án þess að þú þurfir að hætta að borða það sem þér þykir best. Þú munt komast að því að:
• með því að borða matinn í réttri röð léttist þú án fyrirhafnar
• til eru leynitrix til að njóta eftirrétta án afleiðinga
• smávægilegar breytingar á morgunmatnum fylla þig orku og losa þig undan ílöngun
Jessie Inchauspé, sem stundum er kölluð glúkósagyðjan, hefur getið sér gott orð fyrir að setja vísindalegar staðreyndir um blóðsykursstjórnun fram á skýran og auðskiljanlegan hátt, bæði á samfélagsmiðlum og í þessari bók sem hefur farið sigurför um heiminn.
Nanna Rögnvaldardóttir þýddi.