Bókin inniheldur ríflega hundrað myndir af málverkum eftir Eggert Pétursson frá síðustu 26 árum.
Þröstur Helgason skrifar um verk Eggerts og Þorlákur Einarsson um ævi hans og feril.
Þessi fallegi prentgripur er hannaður af Einari Geir Ingvarssyni og prentaður í hágæða prentsmiðju á Ítalíu.