Ferðaatlas Máls og menningar inniheldur 78 kort í mælikvarðanum 1:200 000, gerð af kortagerðarmanninum Hans H. Hansen sem unnið hefur til fjölda alþjóðlegra verðlauna. Á þeim eru rúmlega 26.000 örnefni sem vísað er til í ítarlegri nafnaskrá.
Í ferðaatlasnum eru einnig upplýsingar um 104 áhugaverða skoðunarstaði og kort sem sýna sundlaugar, tjaldsvæði, söfn, golfvelli, þjóðgarða og fuglaskoðunarstaði. Teikningar af varpfuglum, plöntum og skeljum hjálpa síðan til við að gera ferðalagið um Ísland ógleymanlegt.