Sápan gerir sápukúlur úr þessu barni/ sem leikur sér við að blása þeim úr röri/ og býr til heila heimspeki í leiðinni. Fjárhirðirinn er höfuðverk Alberto Caeiro sem portúgalska skáldið Fernando Pessoa leit á sem meistara sinn. Pessoa skapaði á áttunda tug skálda sem öll gengdu tilteknu hlutverki. Náttúruskáldið Alberto hefur eitt og aðeins eitt gildi í hávegum og það er að sjá. Skynja það sem augun nema ? sjá ? og snerta það sem er: veruleikann eins og hann blasir við sjónum okkar.
Þorvarður Hjálmarsson þýddi og ritar inngang og eftirmála.
Fjárhirðirinn
2.695 kr.
Out of stock