Aukinn fjöldi hælisleitenda hér á landi er ýmsum áhyggjuefni en jafnframt
áskorun, bæði fyrir íslenskt samfélag og kirkjur og kristileg samtök. Höfundur
rekur ástæður þess að fólk finnur sig knúið til að yfirgefa fósturjörðina til að
forða lífi sínu. Hann gerir grein fyrir afstöðu Biblíunnar til útlendinga,
gestkomandi og flóttafólks. Kristin kirkja hvetur á þeim grunni til að þeim sé
mætt með mannúð og kærleika eins og öðrum jaðarhópum. Innflytjendur hafa
margt fram að færa til að auðga íslenskt samfélag og geta orðið kirkjulegu starfi
til blessunar. Höfundur rekur ýmis dæmi þess í bókinni.
Flóttamenn
3.895 kr.
Lítið magn á lager