Ein vinsælasta handbók sinnar tegundar, Íslenskur fuglavísir, kemur nú út að nýju, rækilega endurskoðuð og aukin. Hér er ítarlega fjallað um alla varpfugla og reglulega gesti á Íslandi, og getið fjölmargra árvissra flækingsfugla – alls liðlega 160 tegundir.
Bókin hentar einkar vel sem greiningarhandbók, jafnt fyrir þjálfaða fuglaskoðara sem fjölskylduna á ferð um landið. Glöggur og aðgengilegur texti lýsir útliti og hátterni fuglanna, fæðu og kjörlendi, og kort og töflur sýna útbreiðslu, lífsferil og tölfræði.
• Um 700 einstæðar ljósmyndir
• Varp- og vetrarútbreiðslukort
• Dvalar-, varp- og ungatími í myndrænni útfærslu
• Myndir af eggjum í raunstærð
• Vegvísir um fuglaskoðun á Íslandi
Jóhann Óli Hilmarsson er meðal helstu fuglavísindamanna og fugla[1]ljósmyndara okkar og er formaður Fuglaverndar. Hann hefur skrifað fjölda greina um fugla og fuglaskoðun í bækur, blöð og tímarit, og bókina Lundinn. Jóhann Óli hefur haldið fjölda námskeiða, fyrir[1]lestra og myndasýninga og ljósmyndir hans hafa birst víða um heim.