„Viltu segja okkur sögu?“ spyrja synir mínir mig oft.
Já, auðvitað, segi ég.
Einu sinni, endur fyrir löngu …
En þessa sögu sem hér fer á eftir? Nei. Ég mun aldrei deila
henni með nokkrum manni, allra síst börnunum mínum.
Tuttugu ár eru liðin frá því að Gúi hrapaði til bana í útilegu í Hvalfirði og síðan hafa félagar hans, Einar og Brynjar, þurft að vinna úr því áfalli, hvor á sinn hátt – en hvorugur með miklum árangri.
Nú liggja leiðir þeirra saman á ný og uppgjörið er óhjákvæmilegt. Hvað gerðist? Hvers vegna? Hvernig? Og hvern mann hafa þeir raunverulega að geyma?
Kletturinn er spennandi skáldsaga um fyrirgefningu, metnað, siðferðileg álitamál og ekki síst tilfinningasambönd karlmanna. Hlýr tónn höfundar, óvenjuleg stílgáfa og vilji til að takast á við flóknar heimspekilegar spurningar heilluðu lesendur síðustu bókar hans, Stríðs og kliðs (2021), og ger Klettinn einnig að einstakri lestrarupplifun.