Í fórum látins manns finnur ekkjan lúna skammbyssu og fer með hana til lögreglunnar. Í ljós kemur að byssan er morðvopn; með henni var maður skotinn til bana fyrir mörgum áratugum og málið upplýstist aldrei. Forvitnin grípur Konráð, fyrrverandi lögreglumann, vegna sams konar byssu sem faðir hans átti og leiðir hann á vit löngu liðinna atburða. Og úr djúpi tímans birtist fleira en hann óraði fyrir.
Kyrrþey er vægðarlaus glæpasaga um þrúgandi þögn, heitar tilfinningar og bannfærðar langanir.
Arnaldur Indriðason hefur lengi verið vinsælasti höfundur landsins, heima og heiman, og verk hans hafa verið þýdd á tugi tungumála. Með Kyrrþey eru skáldsögur hans orðnar tuttugu og sex talsins. Árið 2021 hlaut Arnaldur Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu og fyrir seinustu bók sína, Sigurverkið, var hann tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.