Þýðendur Geir Sigurðsson og Vilma Kinderyte
Ritstjóri Rebekka Þráinsdóttir
Þann 14. júní 1941 var Dalia Grinkeviciute, 14 ára gömul, meðal þeirra þúsunda íbúa Eystrasaltsríkjanna sem sovésk yfirvöld fluttu nauðuga til Síberíu í þrælkunarvinnu. Bók þessi hefur að geyma minningar hennar frá fyrstu árum útlegðarinnar.
Þær eru vitnisburður um þá hryllilegu meðferð sem útlagarnir þurftu að sæta og viðhaldi mennskunnar í ómanneskjulegum kringumstæðum.