Enginn hafði nokkurn tímann, fyrir utan gesti útlenskra kvennabúra, séð jafn mörg og falleg brjóst. Brúnar, bleikar, rauðar, vínrauðar, fölar, dimmar, feimnar, stórar, hæverskar, undrandi, litlar, mjóar, stingandi geirvörtur, þykkar, ósýnilegar – stór – lítil – hvorki – hvort tveggja – fullorðin – óorðin – brjóst.
Oddný Þorleifs- og Þuríðardóttir stendur á mörkum barns og konu, og rígheldur í bernskuna því hana óar við veröld fullorðnu kvennanna með striti sínu og áþján. En á fimmtánda sumri er henni boðið til Jónsmessugleði þar sem henni opinberast kynngimagnaður og seiðandi kvennaheimur sem dagsdaglega er hulinn bak við ægivald karlanna.
Kristín Ómarsdóttir heldur hér áfram að segja á sinn næma og einstaka hátt skáldaða sögu langömmu sinnar á ofanverðri nítjándu öld í Biskupstungum. Draumþing er annar hluti frásagnarinnar sem hófst með Móðurást:Oddnýju, en fyrir hana hlaut Kristín Fjöruverðlaunin 2024.