Endalokin eru í nánd
Hildur, Theódóra og Baldur eru uppgefin eftir innrásina frá Túle. Þau syrgja Hannes lærimeistara sinn og Bjarni vinur þeirra er fastur í öðrum veruleika þar sem Návaldið skelfilega leikur lausum hala. Úrslitaorrustan við hinn hinsta dauða nálgast hratt, en kraftar söguhetjanna eru öflugri en þau grunar.
Ólafur Gunnar Guðlaugsson hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir Ljósbera, fyrstu bókina í þríleiknum um síðasta seiðskrattann. Návaldið er lokabindið í röðinni, æsispennandi flettitryllir fyrir ungmenni á öllum aldri.