Íslenskur úrsmiður situr í höll Danakonungs og gerir upp forna glæsiklukku. Kvöld eitt rekst sjálfur einvaldurinn, Kristján sjöundi, inn til hans; að nafninu til enn höfuð ríkisins en þykir ekki með öllum mjalla og hefur verið ýtt til hliðar af syni sínum og hirð. Þeir taka tal saman og svo fer að úrsmiðurinn rekur fyrir hátigninni dapur¬lega sögu föður síns og fóstru sem tekin voru af lífi að skipan fyrri konungs, föður Kristjáns.
Sigurverkið er söguleg skáldsaga sem gerist á sunnanverðum Vestfjörðum og í Kaupmannahöfn á 18. öld; margslungin saga og harmræn sem lýsir á áhrifaríkan hátt beiskum örlögum íslensks alþýðufólks og valdinu sem það er undirselt.
Arnaldur Indriðason hefur verið vinsælasti höfundur landsins í áratugi. Bækur hans hafa verið þýddar á yfir fjörutíu tungumál og selst í tugmilljónum eintaka. Sigurverkið er tuttugasta og fimmta skáldsaga hans og hér fetar hann óvænta slóð; frásögnin er að hluta byggð á raunverulegum atburðum og persónum sem stíga fram á sviðið í afar trúverðugri og áhugaverðri sögu sem er einstök í höfundarverki Arnaldar