Höfundar: Lalli og Wally
Hefur þig alltaf langað til að kunna töfrabrögð? Dreymir þig um að vinna í sirkus? Áttu mörg systkini og finnst þú fá of litla athygli? Þá er Skemmtikrafturinn bókin fyrir þig!
Hér kenna Lalli töframaður og trúðurinn Wally 26 brögð og brellur sem slá í gegn hvar sem er og veita frábær ráð um sviðsframkomu. Þú getur til dæmis lært hvernig á að:
• LÁTA BLÝANT HVERFA
• BÚA TIL ÓGEÐSLEGASTA PRUMPUHLJÓÐ Í HEIMI
• GERA BLÖÐRUHUND
• HEILLA ÖMMUR UPP ÚR SKÓNUM (maður græðir alltaf á því)
• BÚA TIL SKEMMTILEGAN SVIÐSKARAKTER
Og margt fleira sem á eftir að færa þér og öllum í kringum þig endalausa gleði.
LALLI hefur skemmt bæði börnum og fullorðnum í fjöldamörg ár með trylltum töfrabrögðum og gríni sem fær fólk til að pissa í sig af hlátri.
WALLY hefur byggt upp glæsilega sirkusmenningu hér á landi og stofnaði til að mynda Sirkus Íslands þar sem hann kitlar hláturtaugar fólks á öllum aldri.