Þetta er sagan um það þegar afi minn varð STRANDAGLÓPUR á eldfjallaeyju,
Grillaðist næstum því
Og hitti á mikilvægustu sekúndu í heimi!
Ævar Þór Benediktsson er rithöfundur og leikari. Hann fékk einu sinni sérstakt leyfi, alveg eins og afi hans, til að heimsækja Surtsey. Það var ótrúleg lífsreynsla. Ævar hefur skrifað fleiri en 30 bækur auk nokkurra leikrita og sjónvarpsþátta.
Anne Wilson myndskreytir.