Í steinhúsi í Reykjavík finnast hrottaleg leyndarmál múruð inn í kjallaravegg þar sem þau hafa legið áratugum saman hjúpuð þögn. Konráð, fyrrverandi lögreglumaður, leitast við að varpa ljósi á illvirki fortíðar en um leið beinist athygli lögreglunnar að honum sjálfum: Hvers vegna sagði hann ekki satt
um atburði dagsins þegar faðir hans var myrtur? Hverju hefur hann þagað yfir öll þessi ár?
Þagnarmúr er átakanleg og margslungin glæpasaga um ofbeldi og varnarleysi, stórar fórnir og afdrifaríkar misgjörðir.
Arnaldur Indriðason hefur um langt árabil verið vinsælasti höfundur landsins og nýtur hylli langt út fyrir landsteinana.
Bækur hans eru nú orðnar tuttugu og fjórar talsins. Þær hafa verið þýddar á yfir fjörutíu tungumál, selst í tugmilljónum eintaka og hafa fært höfundinum ótal verðlaun og viðurkenningar.