UNA PRJÓNABÓK er samstarfsverkefni vinkvennanna Sjafnar, eiganda verslunarinnar og vefsíðunnar Stroff.is, og Sölku Sólar, söngfugls og gleðigjafa. Sjöfn hefur prjónað allt sitt líf og hannað uppskriftir árum saman en Salka tók fyrst upp prjónana fyrir um ári síðan. Þrátt fyrir þennan reynslumun hefur samvinnan gengið vel frá fyrsta degi og það sem átti upprunalega aðeins að verða ein flík, varð að heilli línu – sem varð svo að þessari bók.
Hér er að finna uppskriftir að tveimur heilum prjónalínum, UNU og ÆVI, ásamt fjölda einstakra spjara. Rík áhersla er lögð á að uppskriftirnar séu á mannamáli, þ.e. auðlesnar þeim sem vita lítið sem ekkert um prjónaskap. Bókin er því einkar hentug fyrir grænjaxla í geiranum en reynsluboltar og handóðir prjónarar verða ekki sviknir, ónei!
Það er ósk höfunda að sem flestir hafi gaman af UNU PRJÓNABÓK en stóra markmiðið er að vekja áhuga þeirra sem eru í sömu sporum og Salka fyrir ári síðan; þeirra sem eru ögn ringlaðir og langar að prófa sig áfram en skortir hugmyndir og skýrar og góðar leiðbeiningar.