Eik tilheyrir hópi af sjálfboðaliðum sem leitar uppi flækingsketti og kemur þeim í öruggt skjól. Þegar þau frétta af læðu og kettlingum í steinhleðslu við Urðarhvarf er rokið af stað með fellibúr og hitamyndavél. En við Urðarhvarf birtist skepna sem Eik var búin að telja sér trú um að heði bara verið ímyndun. Skrímsli úr fortíðinni sem rótar upp óþæginlegum minningum og sannfærir Eik um eitt: Hún ein getur bjargað þessum kettlingum.
Hildur Knútsdóttir hefur slegið í gegn með bókum sínum sem oft gerast á mörkum þess raunverulega. Urðarhvarf er stutt skáldsaga sem heldur lesanda í heljargreipum og minnir um margt á fyrri nóvellu Hildar, Myrkrið á milli stjarnanna.