Um allan heim eru konur að uppgötva mátt sinn og megin. Með einfaldri handahreyfingu geta þær valdið gríðarlegum sársauka – jafnvel drepið.
Smám saman átta karlmenn sig á því að þeir eru að missa tökin. Dagur stúlknanna er runninn upp – en hvernig endar hann?
Valdið eftir Naomi Alderman hefur farið sigurför um heiminn og unnið til fjölda verðlauna. Spennandi, hrollvekjandi, umhugsunarverð … tímamótabók.
Helga Soffía Einarsdóttir þýddi