Blóðugt uppgjör glæpagengja. Dauðir úlfar með mannakjöt í maganum. Kaldrifjaður útsendari rússnesku mafíunnar mætir á svæðið. Og hvað varð um alla peningana og dópið? Lögregluliðið í sænska landamærabænum Haparanda kann að fást við smákrimma, veiðiþjófa og dópista en hér er við öllu svæsnari glæpamenn að eiga og það er ljóst að þetta verður ekkert venjulegt sumar. Síst af öllu fyrir miðaldra lögreglukonuna Hönnu Wester, sem stríðir líka við alls konar flækjur í einkalífinu. Og þegar launmorðinginn Katja birtist fara minningar um atburði úr fjarlægri fortíð Hönnu að láta á sér kræla …
Hans Rosenfeldt hefur getið sér alþjóðlega frægð sem handritshöfundur sjónvarpsþáttaraðarinnar Brúin (Broen) og hefur skrifað vinsælar glæpasögur í félagi við Michael Hjorth. Vargar í véum, fyrsta sagan sem hann skrifar einn, hefur vakið mikla athygli og var tilnefnd til Storytel-verðlaunanna og Sænsku glæpasagnaverðlaunanna.
Nanna Brynhildur Þórsdóttir þýddi.