Undirritaðri er það sönn ánægja að tilkynna að bókaútgáfan hefur gefið
út ritið Verðbréfamarkaðsréttur I – markaðir og viðskipti með fjármálagerninga,
eftir Aðalstein E Jónasson, dómara við Landsrétt og Andra
Fannar Bergþórsson lögmann hjá ADVEL og dósent við lagadeild
Háskólans í Reykjavík. Er bókin sú fyrri af tveimur en áætlað er að
seinni bókin, Verðbréfamarkaðsréttur II – upplýsingaskylda, markaðssvik
og yfirtökureglur, komi út í lok árs 2025 eða í byrjun árs 2026.
Er bókin hugsuð sem kennslu- og fræðslurit á sviði verðbréfamarkaðsréttar
en umfangsmiklar breytingar hafa orðið á löggjöf á þessu sviði
innan Evrópska efnahagssvæðisins og hér á landi á síðastliðnum árum.
Er markmið bókarinnar að hjálpa lesendum að skilja út á hvað þetta
viðamikla regluverk gengur og tryggja að á einum stað geti þeir nálgast
ítarlega og vandaða umfjöllun um þær réttarheimildir sem gilda á þessu
þýðingarmikla réttarsviði. Er bókin hugsuð fyrir nemendur á háskólastigi,
fjárfesta, starfsmenn fyrirtækja á fjármálamarkaði, eftirlitsaðila,
lögmenn, dómara, endurskoðendur, fjölmiðla og aðra sem vinna með
regluverkið á einn eða annan hátt eða hafa áhuga á að kynna sér það.
Í bókinni er að finna ítarlega umfjöllun um hvernig löggjöf á þessu sviði hefur þróast hér á landi og innan Evrópska
efnahagssvæðisins. Vikið er að því hvernig eftirliti með regluverkinu er háttað og helstu grundvallarhugtökum sem
gilda á þessu réttarsviði. Loks er þar að finna ítarlega umfjöllun um þær fjárfestaverndarreglur sem þar gilda, svo
sem almennu fjárfestaverndarregluna, reglur um flokkun viðskiptavina, mat á hæfi og tilhlýðileika, upplýsingagjöf
til viðskiptavina, besta framkvæmd, hagsmunarárekstra, skilyrðum fyrir töku fjármálagerninga til viðskipta,
lýsingar, almenn útboð og fleira.
Verðbréfamarkaðsréttur I
15.295 kr.
In stock
- Author: Aðalsteinn E. Jónsson
- Edition: 1
- Publishing year: 2024
- Publisher: BOKAUTGAFANC
- ISBN: 9789935508201