Svefninn sótti að henni, pillan var farin að virka. Það síðasta sem flaug í gegnum hugann áður en hún lognaðist út af voru orð Evu vinkonu: „Ertu orðin snælduvitlaus? Þú ferð ekki að elta þennan drullusokk yfir hálfan hnöttinn!“
Júlía situr í flugvél á leið til Víetnam. Tók skyndiákvörðun um að elta hugboð. Tilfinningu. Vonandi verður tekið á móti henni með bónorði. Eða var Ari nokkuð að segja henni upp með miðanum sem hann skildi eftir á eldhúsbekknum rétt fyrir tíu ára sambandsafmælið?
Yfir hálfan hnöttinn er skálduð ferðasaga eftir Ásu Marin sem áður hefur meðal annars sent frá sér Veg vindsins um pílagrímsgöngu eftir Jakobsveginum. Hér fer saman spennandi saga og framandi umhverfi þar sem fólkið er áhugavert, náttúran fögur og maturinn gómsætur.