Persónuverndarstefna Skilmálar Stefna um vafrakökur
Persónuverndarstefna – Bóksala stúdenta
- Bóksala stúdenta leggur mikið upp úr því að tryggja öryggi persónuupplýsinga notenda.
- Bóksala stúdenta sér til þess að farið sé með allar persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/2000 um persónuvernd og úrvinnslu persónuupplýsinga.
- Stefna Bóksala stúdenta er að geyma og vinna með eins lítið af persónugreinanlegum upplýsingum og mögulegt er til að geta veitt þá þjónustu sem Bóksala stúdenta ber að veita notenda.
- Bóksala stúdenta ábyrgist að nýta sér ekki upplýsingar um notendur á óábyrgan, óöruggan eða ólöglegan hátt.
- Allar upplýsingar sem notendur okkar vefsvæðis láta Bóksölu stúdenta í té eða sem Bóksala stúdenta sækir með þeirra leyfi til þriðja aðila eru eingöngu sóttar í þeim tilgangi að hægt sé að veita þeim þá þjónustu sem þeir eiga rétt á.
Persónuupplýsingarnar
Við notum persónuupplýsingar þínar ekki í neinum öðrum tilgangi en þeirra er aflað. Við áskiljum okkur rétt til að deila persónuupplýsingum þínum með þriðju aðilum sem koma að tæknilegu viðhaldi eða greiðsluþjónustu (slíkir aðilar kallast héðan í frá einu nafni „þriðju aðilar“) að því marki sem nauðsynlegt er svo við getum innt þjónustuna af hendi. Við tryggjum að slíkir þriðju aðilar viðhafi fullan trúnað. Bóksala stúdenta ábyrgist að nota þessar upplýsingar eingöngu í bókhaldslegum tilgangi og til að tryggja réttindi notenda. Notendur http://boksala.is (en ekki Bóksala stúdenta ) eiga sínar persónuupplýsingar og hafa einir aðgang að þeim ásamt starfsfólki Bóksölu stúdenta .
Tölfræðilegar samantektir
Bóksala stúdenta áskilur sér rétt til að útbúa ópersónugreinanlegar tölfræðilegar samantektir og aðrar afleiddar upplýsingar sem án alls vafa eru ekki persónugreinanlegar og nota sér þær í starfi, til dæmis fyrir ársskýrslu Bóksala stúdenta.
Vefhegðun
Þegar notendur heimsækja vefsvæðið http://boksala.is, kann vefsvæðið http://boksala.is að safna tæknilegum upplýsingum um notkun þeirra, t.d. um tegund vafra, hvaða vefsíður notendur heimsækja á http://boksala.is, tímann sem notendur verja á vefnum o.s.frv. Þess konar upplýsingar eru eingöngu notaðar til að bæta upplifun notenda af þjónustunni, t.d. með því að bæta hönnun þjónustunnar eða láta notendur vita af hugsanlegum tæknilegum vandamálum í búnaði þeirra.
Upplýsingar til þriðja aðila
Bóksala stúdenta mun ekki undir nokkrum kringumstæðum afhenda, selja eða leigja persónuupplýsingar notenda http://boksala.is til þriðja aðila nema Bóksölu stúdenta sé það skylt samkvæmt lögum eða samkvæmt beiðni notanda.
Bókhaldsgögn
Bókhaldsgögn eru geymd í samræmi við lög og reglur um færslu bókhalds og varðveislu þess. Að þeim tíma liðnum er gögnunum eytt, upplýsingum á skilagreinum er þó ekki eytt.
Takmörkun ábyrgðar
Að því marki sem gildandi lög heimila, ber Bóksala stúdenta enga skaðabótaábyrgð vegna atvika sem upp kunna að koma vegna þess hvernig þjónustan er notuð eða útveguð, nema ef hægt er að rekja slík atvik til vítaverðrar vanrækslu eða misferlis af ásetningi af hálfu Bóksölu stúdenta . Bóksala stúdenta ber enga ábyrgð á töfum sem verða á þjónustunni eða því að þjónustan virki ekki sem skyldi vegna óviðráðanlegra atvika (force majeure).
Lög og lögsaga
Þessi persónuverndarstefna fellur undir íslensk lög. Leysa skal úr ágreiningi sem kann að rísa eða í tengslum við persónuverndarstefnuna fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur ef ekki er hægt að leysa úr honum á annan hátt.
Breytingar
Bóksala stúdenta áskilur sér rétt til þess að breyta og uppfæra persónuverndarstefnu þessa hvenær sem er. Við látum vita af slíkum breytingum á heimasíðu Bóksölu stúdenta .
Tengiliðaupplýsingar
Ef þú óskar eftir nánari upplýsingum varðandi persónuverndarstefnu Bóksölu stúdenta skaltu hafa samband við okkur hér: Sími: 5700777, Netfang: boksala@boksala.is
Traust er eitt af einkunnarorðum Bóksölu stúdenta og leggur mikla áherslu á að tryggja öryggi þeirra persónuupplýsinga sem notendur http://boksala.is treysta Bóksölu stúdenta fyrir.