Að drepa hermikráku kom fyrst út í Bandaríkjunum undir heitinu To Kill a Mockingbird árið 1960 og hefur nú selst í yfir 40 milljónum eintaka. Höfundur bókarinnar, skáldkonan Harper Lee, hlaut Pulitzer-verðlaunin fyrir hana en bókin er afar áhrifamikil og frábærlega skrifuð þar sem kímni og alvarleiki renna saman í töfrandi frásögn. Undirtónninn er raunsönn ly´sing á aldarfari í suðurríkjum Bandaríkjanna á fyrri luta síðustu aldar, fordómum, kynþáttamismunun en líka manngæsku og samstöðu. Þar sem barn segir söguna verður ly´singin enn sterkari og áhrifameiri. Bókin hefur ekki áður komið út á íslensku, en þýðandi er Sigurlína Davíðsdóttir.
Að drepa hermikráku
3.595 kr.
Lítið magn á lager