Tvíburasysturnar Stella og Desirée alast upp í smáþorpi í Louisiana þar sem allir eru af blönduðum uppruna. Þegar systurnar strjúka að heiman sextán ára gamlar árið 1954 til að freista gæfunnar í New Orleans gera þær sér ljóst að ýmsar dyr geta opnast því fólki sem eru nógu ljóst yfirlitum … svo framarlega sem það tileinkar sér hætti hvítra.
Og þar skilur leiðir: Önnur systirin tekur skrefið yfir í veröld hvíta fólksins og afneitar uppruna sínum en hin flytur að lokum aftur til heimabæjarins. En örlög þeirra fléttast óvænt saman aftur með næstu kynslóð.
Að hálfu horfin er hrífandi saga þriggja kynslóða litaðra kvenna í Bandaríkjunum, saga af lygum, leyndarmálum og því að tileinka sér sjálfsmynd annars kynþáttar í leit að betra lífi.
Bandaríski rithöfundurinn Brit Bennett skaust upp á stjörnuhimininn með fyrstu bók sinni, The Mothers, árið 2016. Að hálfu horfin er önnur bók hennar og vermdi meðal annars efsta sæti metsölulista The New York Times ásamt því að hljóta tilnefningu til Women’s Prize verðlaunanna.