Kæri lesandi
Sko… ókei… sko, ég þekki ENGA fjölskyldu sem hefur lent í meira rugli en okkar fjölskylda. EN! Það er ekkert miðað við það sem ég lendi í núna! Listakonan amma Köben slær í gegn og vill fá okkur öll út í heimsókn (það er geggjað), tvíburarnir klifra út um allt og kunna ekki á kopp (ég ætla ekki að kenna þeim það), allt fer í steik hjá elsku bestu Fatímu (ég verð að laga það) og… Bíddu… var ég búin að minnast á danska gaurinn með síða hárið sem er alltaf bara í nærbuxum? Í ELDHÚSINU okkar? Þessi bók ætti í raun að heita: Amma Köben og MESTA RUGL Í HEIMI!
Þín að eilífu, Stella.
Gunnar Helgason þarf vart að kynna fyrir íslenskum börnum, foreldrum, öfum og ömmum. Bækurnar hans um Stellu og skrautlega fjölskyldu hennar eru í uppáhaldi hjá þeim öllum, auk þess sem þær eru margverðlaunaðar og stjörnum hlaðnar af lesendum jafnt sem hátíðlegum gagnrýnendum. Nú er komið að áttundu bókinni og hér snýr amma Köben aftur AF KRAFTI!