þrjár Maríur
höfum í upphafi
ímugust hver á annarri
snýst seinna
yfir í fáleika
neyðumst loks
til að játast
örlögunum
Líf þriggja gjörólíkra kvenna fléttast óvænt saman þegar dætur þeirra lenda á villigötum. Þær eru bakland barna sinna en bera
sjálfar bagga úr eigin uppvexti.
Bakland er þriðja ljóðabók Hönnu Óladóttur. Sú fyrsta, Stökkbrigði, kom út árið 2019 og Kona fer í gönguferð tveimur árum síðar.