Mögnuð fjölskyldusaga sem gerist á árunum 1963–2005 í Aleppo, Sýrlandi. Borgin, áður vagga menningar og ríkidæmis, er bókstaflega að hrynja og endurspeglar andlegt hrun fjölskyldunnar, vina, fjandmanna og elskenda í grimmilegu einræðinu.
Skáldsaga eftir þekktasta samtímahöfund Sýrlands, Khaled Khalifa, sem búsettur er í Damaskus. Fyrir verkið hlaut hann Naguib Mahfouz-bókmenntaverðlaunin, auk þess sem bókin var tilnefnd til Arab Man Booker-verðlaunanna. Engir hnífar í eldhúsum þessarar borgar er önnur bók Khalifa á íslensku. Sú fyrri, Dauðinn er barningur, kom út hjá Angústúru árið 2019. Khaled Khalifa var gestur Bókmenntahátíðar í Reykjavík í september 2021.