Pipp elst upp í Kent um miðja nítjándu öld hjá skapstríðri systur sinni og manni hennar, járnsmiðnum Joe. Hann stritar í smiðjunni en langar til að komast ofar í þjóðfélagsstigann – ekki síst eftir að hann kynnist hinni fögru en drambsömu Estellu. Einn daginn lítur út fyrir að glæstar vonir hans muni rætast og hann heldur til London. En ekki er allt sem sýnist og inn í þessa grípandi sögu, þar sem birt er lifandi mynd af Englandi Viktoríutímans, fléttast glæpir og refsing, hefndarhugur og von, ást og söknuður.
Glæstar vonir er tímalaust stórvirki, ein af seinustu skáldsögum Dickens og af mörgum talin sú besta. Hann dregur upp margslungnar, litríkar og raunsannar persónur og glæðir þær lífi.
Hér gefst íslenskum lesendum færi á að njóta snilldar meistarans í meitlaðri þýðingu Jóns St. Kristjánssonar.