Ævisaga þessi er um líf, kveðskap og áhrif skáldprestsins Hallgríms
Péturssonar (1614-1674). Hún er skrifuð í tilefni af 350 ára ártíð hans
en hann lést 27. október 1674.
Þetta er að mörgu leyti óvenjuleg ævisaga. Uppbyggingin er sú að í
fyrri hlutanum er fjallað um staðina sem hann tengdist, Hóla í
Hjaltadal, Glückstadt og Kaupmannnahöfn, Suðurnesin og Hvalsnes, og að
lokum Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Tveir kaflar eru um kirkjurnar sem
bera nafn hans, þá í Saurbæ og svo á Skólavörðuholtinu.
Í seinni hlutanum er fjallað um kveðskap hans sem og bækur og ritgerðir
sem hann skrifaði.
Reynt er að rýna í áhrif hans allt til þessa dags, m.a. með því af fara
ítarlega í deilur í kringum byggingarsögu kirknanna tveggja. Deiluaðilar
vildu eigna sér hann, bæði þeir félagslega sinnuðu og þeir sem vildu
byggja kirkjulegt musteri.
Sérstök áhersla er lögð á ádeilur sr. Hallgríms til að sýna að kirkja
og kristni eiga sér slíka hefð enda er hún sótt til meistarans og örlaga
hans, krossfestingarinnar. Þessi ádeila beinist einkum gegn yfirvöldunum
og valdníðslu þeirra fyrr og síðar en einnig fær almenningur að heyra
það fyrir værukærð sína og vanrækslu við náungann. Þó syndugt mannkyn
fái miklar skammir er þarna einnig að finna kraftmikinn náðarboðskap um
guðlegan kærleika sem við mannfólkið eigum að bera áfram til meðbræðra
okkar og systra.
Hallgrímur Pétursson: Líf, kveðskapur ogáhrif
8.995 kr.
Lítið magn á lager
- Höfundur: Torfi K. Stefánsson
- Útgáfa: 1
- Útgáfuár: 2024
- ISBN: 9789935520586