Frosið lík finnst í einni skíðalyftunni í Åre. Ýmislegt bendir til morðs og jafnvel að fleiri morð séu í vændum. Stormur er í aðsigi og lögreglan má engan tíma missa við lausn morðgátunnar. Hve mörg verða fórnarlömbin áður en sannleikurinn lítur dagsins ljós?,
Tvíeykið Daníel Lindskog og Hanna Ahlender rannsakar málið. Daníel er lögregluvarðstjóri í Åre. Hann var að að eignast sitt fyrsta barn með skíðakennaranum Ídu. Hanna er hins vegar nýflutt til Åre eftir að hafa misst bæði kærastann og vinnuna í Stokkhólmi.
Helkuldi er fyrsta bókin í nýrri glæpaseríu eftir metsöluhöfundinn Vivecu Sten, höfund hinna frábæru Sandhamn-bóka sem notið hafa mikilla vinsælda á Íslandi. Nýja serían heitir Morðin Åre og gerist í ægifögru skíða- og útivistarsvæði í Jamtalandi í Svíþjóð.